
Myndin er í raun könnunarferð um smáheim íslensku hagamúsarinnar eins og hann birtist undir sjónarhorni tveggja músa, Óskars og Helgu. Á nærfærinn og skemmtilegan hátt er músunum fylgt er þær takast á við ýmsar hættur, jafnt úti í náttúrunni sem í híbýlum manna. Fylgt er árstíðabundnu atferli músanna, sem eignast saman afkvæmi og eru iðnar við að afla forða til næsta vetrar.Þorfinnur Guðnason kvikmyndagerðarmaður lést fyrr á árinu, 55 ára að aldri. Þorfinnur var einn ötulasti heimildamyndagerðarmaður Íslands síðustu tvo áratugi. Þorfinnur leikstýrði fjölda virtra verka á borð við Hagamús: – með lífið í lúkunum, Lalli Johns og Draumalandið. Fyrir þær tvær síðarnefndu hlaut hann Edduverðlaunin fyrir bestu heimildamynd. Einnig var hann aðalframleiðandi Kjötborgar, sem vann líka til Edduverðlauna fyrir bestu heimildamynd.
Titill | Hagamús - Með lífið í lúkunum |
---|---|
Ár | 1997 |
Genre | Documentary |
Land | |
Stúdíó | |
Leikarar | Erlingur Gíslason |
Áhöfn | Þorfinnur Guðnason (Director), Þorfinnur Guðnason (Writer) |
Slepptu | Dec 25, 1997 |
Runtime | 52 mínútur |
Gæði | HD |
IMDb | 0.00 / 10 eftir 0 notendur |
Vinsældir | 0 |